Mönnunarnefnd skipa
Nefndin er skipuð í samræmi við ákvæði 13. gr. laga um áhafnir fiskiskipa, varðskipa, skemmtibáta og annarra skipa, nr. 30/2007. Hlutverk mönnunarnefndar er að fjalla um mönnun íslenskra fiskiskipa, varðskipa, skemmtibáta og annarra, sbr. ofanrituð lög.
Aðalmenn:
- Lilja Jónasdóttir, formaður, tilnefnd af fyrrverandi innviðaráðherra,
- Árni Bjarnason, tilnefndur af Félagi skipstjórnarmanna,
- Guðmundur Helgi Þórarinsson, tilnefndur af Félagi vélstjóra og málmtæknimanna,
- Ingimundur Ingimundarson, tilnefndur af Samtökum fyrirtækja í sjávarútvegi,
- Jón Kristinn Sverrisson, tilnefndur af Samtökum fyrirtækja í sjávarútvegi.
Varamenn:
- Kristín Helga Markúsdóttir, varaformaður, tilnefnd af samgöngu- og sveitarstjórnarráðherra,
- Árni Sverrisson, tilnefndur af Félagi skipstjórnarmanna,
- Halldór Arnar Guðmundsson, tilnefndur af Félagi vélstjóra og málmtæknimanna,
- Guðmundur Herbert Bjarnason, tilnefndur af Samtökum fyrirtækja í sjávarútvegi,
- Kjartan Viðarsson, tilnefndur af Samtökum fyrirtækja í sjávarútvegi.
Með nefndinni starfar Ólafur Briem, deildarstjóri á farsviði Samgöngustofu.
Skipunartími er frá og með 1. janúar 2020 til og með 31. desember 2022 eða til þriggja ára.