Samráðshópur um aðgerðaáætlun í geðheilbrigðismálum til ársins 2030
Nú liggja fyrir drög að stefnu í geðheilbrigðismálum sem leggja á fram sem þingsályktun á næstu vikum. Þeirri stefnu þarf að gera skil í aðgerðaáætlun og lagt er til að sú áætlun fylgi þingsályktuninni sem fylgiskjal.
Hlutverk samráðshópsins er að greina, meta, setja fram og fylgja eftir aðgerðaáætlun í geðheilbrigðismálum. Lagt er til að samráðshópurinn starfi í tveimur hópum, kjarnahóp og rýnihóp.
Samráðshópinn skipa
- Páll Matthíasson, doktor í geðlækningum, formaður hópsins
- Engilbert Sigurðsson, prófessor í geðlækningum í Háskóla Íslands
- Nanna Briem, forstöðumaður geðþjónustu LSH
- Liv Anna Gunnell, sviðstjóri sálfræðiþjónustu Þróunarmiðstöðvar íslenskrar heilsugæslu
- Héðinn Unnsteinsson, formaður Geðhjálpar
- Sigríður Gísladóttir, aðstandandi
- Sigurlín H. Kjartansdóttir, sálfræðingur, frá Heilbrigðisstofnun Austurlands
- Guðlaug U. Þorsteinsdóttir, frá Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins
- Gígja Skúladóttir, hjúkrunarfræðingur frá Vinafélaginu, áhugafólk um nýja hugsun í geðheilbrigðismálum á Íslandi
- Gísli Kort Kristófersson, dósent í hjúkrunarfræði, Háskólanum á Akureyri
- Auður Axelsdóttir, fyrir hönd Hugarafls
- Ólöf Elsa Björnsdóttir, hjúkrunar- og lýðheilsufræðingur, frá embætti landlæknis
- Anna Birgit Ómarsdóttir, frá heilbrigðisráðuneytinu
- Helga Sif Friðjónsdóttir, frá heilbrigðisráðuneytinu
- Ingibjörg Sveinsdóttir, frá heilbrigðisráðuneytinu
Samráðshópurinn er skipaður af heilbrigðisráðherra 28. febrúar 2022.