Vinnuhópur um samninga um kaup á heilbrigðisþjónustu
Hlutverk vinnuhópsins er að móta tillögur um það hvernig rétt sé haga reglum varðandi undirbúning og framkvæmd samninga um kaup á heilbrigðisþjónustu með eins einföldum og skilvirkum hætti og mögulegt er. Vinnuhópurinn er skipaður fulltrúum frá heilbrigðisráðuneytinu, fjármála- og efnahagsráðuneytið og Sjúkratryggingum Íslands.
Vinnuhópinn skipa
- Aðalbjörg Guðmundsdóttir, án tilnefningar, formaður
- Guðrún Birna Finnsdóttir, tiln. af fjármála- og efnahagsráðuneytinu
- Guðlaug Björnsdóttir, tiln. af Sjúkratryggingum Íslands
- Ólafur Gunnarsson, án tilnefningar
Vinnuhópurinn er skipaður af heilbrigðisráðherra 3. febrúar 2022. Gert er ráð fyrir að hópurinn skili tillögum sínum til ráðherra fyrir 20. maí 2022.